Bandarískir dagar

Á meðan Bandaríkin sýna vaxandi áhuga á norðurslóðum með tilheyrandi landakröfum, beinum við Íslendingar athyglinni í að Bandaríkjunum og þeirra jarðnæði.
Nú hefur ný sending af bandarískum vínum lent hjá Santé í tilefni af bandarískum dögum, frá Heitz Cellar, Ridge Vineyards og Truchard. Bandarískir dagar hjá Santé snúast ekki um hamborgara og og aðrar skyndilausnir, heldur þvert á móti um þolinmæði.
Heitz Cellar, sem Joe Heitz stofnaði 1961, framleiðir hið heimsfræga Martha's Vineyard – fyrsta eingarðs Cabernet Sauvignon vín Kaliforníu. Ridge Vineyards er þekktast fyrir sinn 18. aldar víngerðarstíl þar sem náttúruleg gerjun og lágmarks íblöndun ræður ríkjum, ásamt flaggskipinu Monte Bello. Truchard frá Carneros varð til þegar Tony Truchard nýtti dropaáveiturkerfi í jarðvegi sem allir töldu ónýtan til vínræktar.
Þótt Parísarsmökkunin 1976 hafi verið söguleg, þá verður smökkunin í rannsóknarsetri Santé næsta miðvikudag það svo sannarlega líka. Þann 23. apríl munu vínunnendur upplifa ferðalag í gegnum bandarískan vínbúskap undir leiðsögn Hafliða Loftssonar, sem hefur um árabil ræktað þekkingu Íslendinga á bandarískum vínum. Hafliði mun opna gestum sýn á það besta sem Kalifornía hefur upp á að bjóða hvað vín varðar – og útskýra af hverju vín eins og Martha's Vineyard og Monte Bello skipta sköpum.
Miðaverð er aðeins 5.900 kr., en sætaframboð er takmarkað. Skráning fer fram á Sante.is. Þetta er tækifæri til að upplifa þrjár mismunandi nálganir í bandarískri víngerð á einu kvöldi – og taka þátt í smökkun sem verður líklega jafn söguleg og sú sem haldin var í París fyrir hálfri öld.
God bless the USA!