Santé!

Verslunin Sante.is er rekin af franska einkahlutafélaginu Santewines SAS. Vefverslunin var opnuð þann 8. maí 2021 og var fyrsta frjálsa verslunin með vín og bjór á Íslandi.

Við erum lítið fyrirtæki með mikla ástríðu fyrir vínum með sérstöðu sem bera uppruna sínum merki. Það sem hér er átt við má einnig lýsa sem andstæðu við einsleit vín sem framleidd eru í miklu magni. Við viljum helst að vínin séu gerð undir formerkjum lífrænnar ræktunar og án allra kemískra bragðefna. Þannig fá blæbrigði sem oft eru einkennandi fyrir hvert svæði eða jafnvel hverja ekru að njóta sín.

Öll vín eru seld á netinu, beint af eigin lager fyrirtækisins á Íslandi. Vínin eru seld með lágmarks tilkostnaði og lágri álagningu.

Við erum með sýningarrými, vöruafgreiðslu og rannsóknarsetur í Skeifunni 8.

  • Arnar Sigurðsson

    Eigandi

  • Elías Blöndal Guðjónsson

    Eigandi

  • Pétur Matthías Sæmundsson

    Lagermaður

  • Hulda Pjetursdóttir

    Sérfræðingur

  • Lind Ólafsdóttir

    Sérfræðingur

  • Davíð Arnarsson

    Lagermaður

  • Ragnar Eiríksson

    Sérfræðingur

NaN af -Infinity