KJÖRLEND
CHARDONNAY OG
PINOT NOIR

Truchard víngarðarnir eru staðsettir í Carneros  og taldir kjörlend Búrgúndarplantnanna Chardonnay og Pinot Noir.

Auk þess gerir Tony Truchard góð vín úr sjaldgæfum þrúgum þar um slóðir, m.a. Roussanne og Tempranillo. Vínin frá honum eru fíngerð og ljúf, sem sagt engir boltar.

ALLIR TÖLDU LANDIÐ ÓNÝTT

Árið 1972 keypti Tony Truchard 20 hektara land í Carneros í Napa Valley sem allir töldu ónýtt til vínræktar vegna kaldara loftslags og vatnsleysis.

Tony þróaði lausn með því að nýta leirjarðveginn til að safna regnvatni í lón og var meðal fyrstu manna í Kaliforníu til að nota ísraelskt dropaáveitukerfi fyrir vínrækt. Þessi nýjung gerði Carneros að einu besta vínræktarsvæði vesturstrandarinnar.

Í dag ræktar Tony á um 280 hekturum.