Puligny Montrachet - Aristókratískt vínþorp
Líklega er við hæfi að hefja greinina á að hugtakaútskýringu Halldórs Laxness sem útskýrði: „Þegar kýrin veður yfir keldu, lyftir hún upp halanum. Það er aristókratismi.“
Þorpið Puligny-Montrachet hefur yfir sér einhverja hefðaráru, aristókratískt í alla staði. Segja má að það sé einnig nokkuð lýsandi fyrir vínin sem þaðan koma. Ég man eftir þremur gistihúsum og jafn mörgum veitingastöðum auk eins vínbars. Hvort heldur er að morgni eða að kvöldi má segja að manni bregði ef maður mætir manni á götu úti í Puligny. Frægasta vínhús bæjarins er Domaine Leflaive sem átt hefur sínar hæðir og lægðir í gegnum tíðina og lifir á fornri frægð sem a.m.k. réttlætir að einhverju leyti nokkuð hátt verð. Af öðrum víngerðarhúsum í efsta laginu má nefna Íslandsvinina Etienne Sauzet og Francois Carillon sem jafnframt eru í fremstu röð. Þorpið stendur á milli Chassagne-Montrachet í suðri og Meursault í norðri.
Sérstaða vínræktunar almennt í Búrgúndí felst í að jarðnæði er afar takmarkað en eftirspurn því sem næst ótakmörkuð. Af því leiðir að bændur neyðast til að keppa í gæðum því öfugt við hvernig háttar til á Íslandi fást engar niðurgreiðslur á framleiðslu (eingöngu lítilsháttar ræktunarstyrkir eftir flatarmáli ræktarlands). Takmarkað jarðnæði lýsir sér m.a. í að oft skiptist eignarhald á ekrum niður á tugi bænda sem aftur þýðir að hér er engin stærðarhagkvæmni til staðar og vínin í raun ekki seld í skilningi þess hugtaks heldur úthlutað einu sinni á ári sem aftur kallar á nokkurs konar áskriftarfyrirkomulag til neytenda.
Þar sem öll flokkun vína í Búrgúndí byggir á ekrum og þorpum er vert að geta þess að vatnsyfirborð þorpsins er nokkuð lágt þannig að í því eru engir kjallarar. Sú staðreynd þýðir að vínviður á láglendisekrum þarf ekki að róta sig eins djúpt eftir vatni eins og háttar t.d. til um í hinum aðliggjandi þorpunum.
Sagt er að til að ná gæðum í efsta flokki þurfi vínviðurinn að þjást - þurfi að hafa fyrir lífinu - kannski ekki ósvipað og háttar til með okkur mannfólkið. Önnur samlíking við mannskepnuna er að hækkandi lífaldur gefur af sér minna magn þó svo að gæði aukist eftir því sem plantan nær að róta sig dýpra í jarðveginum. Sú staðreynd skýrir að vínviður á láglendi í Puligny stendur sambærilegum ekrum í Chassagne og Meursault ekki framar þó svo að ekrurnar ofar í hlíðinni kunni að vera í uppáhaldi hjá mörgum sem gera kröfur um besta mögulega Chardonnay sem heimurinn getur boðið upp á.
Fyrir utan Grand Cru ekrurnar eru bestu ekrur þorpsins (sem flokkast sem fyrsta flokks, ,,Premier Cru”) Caillerets, Combettes, Pucelles og Clavaillon. Um vínin má segja að þau bestu gefi af sér tóna um hvítar ferskur í eftirbragði.

Á milli jóla og nýárs fáum við fyrstu sendinguna frá Francois Carillon og má heita nokkuð víst að þau vín muni seljast upp strax en kaupendur munu þá í framtíðinni fá boð þegar nýir árgangar koma í hús.
Hér eru vínin sem við erum að fá frá Francois Carillon ásamt, einkunn Jasper Morris.
- Bourgogne Côte d'Or Blanc Chardonnay "Vieux Clos" – 88-90 stig – 5.800 kr.
- Saint-Aubin 1er Cru Les Murgers des Dents de Chien – 92-95 (5 Star) – 10.900 kr.
- Puligny-Montrachet – 90-92 stig – 12.300 kr.
- Puligny-Montrachet «Clos du Vieux Château» – 90-92 stig – 12.700 kr.
- Puligny-Montrachet Les Enseignères – 92-93 stig – 13.100 kr.
- Puligny-Montrachet 1er Cru Champ Gain – 92-95 stig – 16.500 kr.
- Puligny-Montrachet 1er Cru Les Perrières – 92-96 stig – 22.100 kr.
