Betri Ofurskál með Santé!
Bjór er órjúfanlegur hluti bandarískrar menningar en ef einn dagur ársins skilgreinir þessa tengingu betur en nokkur annar þá er það Super Bowl sunnudagurinn.
Þennan sunnudag drekka Bandaríkjamenn um 325 milljónir lítra af bjór – nægilegt magn til að fylla tæplega 500 Laugardalslaugar. Þetta er næststærsti bjórdagur ársins í Bandaríkjunum á eftir 4. júlí.
Nú hafa útivistarfyrirtækið Columbia Sportswear og brugghúsið Breakside Brewery í Portland tekið höndum saman og búið til bjórinn „Nature Calls". Bjórinn er óvenjulegur að því leyti að hann inniheldur bjarnarskít. Columbia er með nýja stefnu sem heitir „Engineered for Whatever" þar sem þeir vilja sýna að náttúran er ekki alltaf eins og hún er sýnd hjá áhrifavöldum á samfélagsmiðlum. Stundum er hún blaut og köld og stundum stígur maður í skít - í þessu tilviki bjarnarskít. En Columbia skórnir og annar búnaður hjálpar þér að takast á við hvað sem er.
Bjórinn er alvöru lagerbjór, bruggaður með vatni úr Bull Run ánni, malti frá Pacific Northwest, hunangi, bláberjum og síðast en ekki síst dauðhreinsuðum bjarnarskít sem var safnað á göngustígum í Montana.
En hvað ætli sé það snjallasta við þessa markaðsbrellu? Columbia sparaði sér 8 milljónir dollara fyrir 30 sekúndna Super Bowl auglýsingu. Í staðinn fá þeir ókeypis umfjöllun um allan heim – og bjórinn verður raunverulega seldur við Levi's Stadium á Super Bowl.
Við höfum því miður ekki aðgang að þessum skrítna bjór en í staðinn bjóðum við hrímkalda Miller Genuine Draft, Bud Light, Budweiser og Coors. Hefðbundnir bandarískir bjórar sem henta vel yfir löööngum leik. Líklega allir betri heldur en bjór með bjarnarskít.

Boquerones Nachos - Baska-nachos!
En þá er lagt til að við förum örlítið út fyrir þægindarammann í snakkinu. Við erum með boquerones (hvítar ansjósur í ediki) í dós – sem er frábær grunnur fyrir óvænt Ofurskálar-snakk.
- Dreifðu góðu lagi af uppáhalds nachos flögunum þínum á ofnplötu og settu rifinn osti yfir.
- Settu plötuna í heitan ofn í nokkrar mínútur þar til osturinn er bráðnaður og flögurnar heitar.
- Taktu plötuna úr ofninum. Taktu boquerones úr dósinni, láttu edikslöginn renna vel af þeim og dreifðu þeim köldum jafnt yfir heitu nachos flögurnar.
- Toppaðu með fínskornum jalapeños (ferskum eða úr krukku) eftir smekk.
Sýran og saltið úr ansjósunum, hitinn frá jalapeño-inu og stökkar flögurnar skapa fullkomið jafnvægi sem passar einstaklega vel með léttum lagerbjór. Þetta er fljótlegt, einfalt og kemur gestunum á óvart!
Skál fyrir góðri helgi. Ofurskál!
