Hafliði Loftsson skrifar: Stóra vínsmökkunin 1976 í París


Eftir Hafliði Loftsson

Hafliði Loftsson skrifar: Stóra vínsmökkunin 1976 í París - Sante.is

Upphaflega birtist þessi frétt á Ber.is 4. júlí 2019 en nú stendur til að smakka nokkur amerísk vín hjá Santé 23. apríl næstkomandi.

Nú er nefnilega upplagt að rifja upp að frægasta vínsmökkun sögunnar fór fram 1976 í París. Þá safnaði vínmeistarinn [e. Master of Wine], Stephen Spurrier [SS], saman nokkrum af beztu vínum sem hann hafði komizt í kynni við í Kaliforníu og stillti upp í blindsmökkun á móti nokkrum af beztu vínum Frakklands. Á þessum tíma voru Kaliforníuvín ekki hátt skrifuð utan Bandaríkjanna og kannski alveg sérstaklega ekki í Frakklandi. Enn þann dag í dag eru vín ekki hátt skrifuð í Frakklandi nema þau séu frönsk {sennilega eru flest víngerðarlönd heimakær}. Gæðin voru kannski metin á við kassavín í dag? Stundum var amerískum vínum líkt við Kóka Kóla en með opnum huga og nefi má enn stöku sinnum finna þau einkenni.

Öllum að óvörum sigraði Stag's Leap SLV Cabernet Sauvignon frá Napa-dal í keppni rauðvína og Chateau Montelena Chardonnay í flokki hvítra {ekki kynþáttaníð}. Af ellefu dómurum voru níu franskir, einn breskur [SS (ekki þýzkur)] og einn bandarískur. Við útreikning niðurstöðu voru eingöngu atkvæði Frakkanna talin. Þegar úrslitin lágu fyrir krafðist einn frönsku dómaranna þess að atkvæðaseðill hennar yrði dreginn til baka.

Því hefur stundum heyrzt fleygt að frönskum meðaljónum hafi verið stillt upp gegn Ameríkönunum en það var aldeilis ekki tilfellið. Þarna voru Château Mouton Rothschild [Pauillac], Ch. Montrose [St. Estephe], Ch. Haut-Brion [Graves] og Leoville Las Cases [St. Julien]. Allt saman toppvín, 2 fyrsta yrkis {af 5 vínum Premier Grand Cru Classé flokkunar 1855} og 2 í öðrum flokki {þar eru 14 vín} en bæði teljast OfurÖnnur {eins og dóttir mín} [e. Super Second], þ.e. þau gera tilkall til fyrsta flokks ásamt 2-3 öðrum.

Rauðvínin röðuðust svona 1976:

  1. USA - Stag's Leap SLV
  2. France - Château Mouton Rothschild [Pauillac]
  3. France - Ch. Montrose [St. Estephe]
  4. France - Ch. Haut-Brion [Graves]
  5. USA - Ridge Vineyards Monte Bello [Santa Cruz fjallgarðinum SV af San Fransiskó]
  6. France - Ch. Leoville Las Cases [St. Julien]
  7. USA - Heitz Martha's Vineyard [Napa]
  8. USA - Clos du Val Winery [Napa]
  9. USA - Mayacamas Vineyards [Napa]
  10. USA - Freemark Abbey Winery [Napa]

Annar algengur misskilningur er sá að Ameríkanarnir hafi rúllað Frökkunum upp. En eins og sést á þessum lista, þá var SLV einmana efstur með 3 Frakka á hælunum {dulbúin auglýsing?}.

Tímaritið Wine Spectator endurtók smökkun á sömu vínum 1986 og þá lentu 5 amerísk vín í efstu sætunum, Heitz Martha's Vineyard 1970 í því fyrsta. En sumum þykir Wine Spectator finnast sinn fugl fagur.

Það er - og var sérstaklega - þrautseig mýta að amerísk vín eldist ekki vel. Frakkar þóttu - og þykja enn - hafa einkaleyfi á þokkafullri öldrun. Sú mýta var rækilega hrakin í endurtekningu smökkunarinnar miklu árið 2006 í Kaliforníu en þá röðuðu upphaflegu árgangar Ameríkananna [1970-1973] sér aftur í fimm efstu sætin. Svo komu Frakkarnir niðurlútir á eftir. Niðurstaða endursmökkunar upphaflegu árganganna árið 2006 á 30 ára afmæli smökkunarinnar:

  1. USA – Ridge Vineyards Monte Bello 1971
  2. USA – Stag's Leap Wine Cellars 1973
  3. USA – Mayacamas Vineyards 1971 (jafnt)
  4. USA – Heitz Wine Cellars Martha's Vineyard 1970 (jafnt)
  5. USA – Clos Du Val Winery 1972
  6. France – Château Mouton-Rothschild 1970
  7. France – Château Montrose 1970
  8. France – Château Haut-Brion 1970
  9. France – Château Leoville Las Cases 1971
  10. USA – Freemark Abbey Winery 1969

Bandaríkjamenn voru svo hreyknir af frammistöðu sinna vína að einni flösku af hvoru víni, Stag's Leap SLV Cabernet Sauvignon 1973 og Chateau Montelena Chardonnay 1973, var komið fyrir á Smithsonian safninu, þar sem þær dveljast enn í góðu yfirlæti ásamt tunglferjunni og The Spirit of St. Louis, sem er reyndar ekki brennivín frá miðríkjunum heldur flugvélin sem Charles Lindbergh flaug fyrsta eins manns flugið yfir Atlantshafið, þann 20. maí 1927 frá Long Island og lenti daginn eftir í París - nema hvar!



Í þessari grein