Skynsamleg barátta


Eftir Elías Blöndal Guðjónsson

Skynsamleg barátta - Sante.is

Í þorpinu Flagey-Echezeaux, er að finna víngerð sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi frá 1975.

Við heimsóttum Richard fyrir um tveimur árum, stuttu eftir að faðir hans, Bruno , lést. Sonur hans hafði þá tekið við rekstrinum og hafði fangið fullt af verkefnum. Hann gaf sér tíma til þess að leyfa okkur að smakka afrakstur 2022 árgangsins en einnig nokkur eldri vín.

Richard hefur þá sýn að hefðin sem faðir hans lagði grunn að, sé sú sem muni skila árangri. Bruno lagði áherslu á að nota gamlan vínvið og sem minnsta íhlutun. Minni uppskera er af gömlum plöntum, þær afkasta minna magni líkt og við mannfólkið. Vínviðurinn myndar færri klasa og minni ber. Þetta er þó kostur fyrir gæðin, því plantan beinir orku sinni að færri þrúgum á meðan djúpt rótakerfið nær í vatn og næringarefni sem yngri plöntur ná ekki til sem er mikilvægt þar sem bannað er að vökva. Vínviðurinn á mörgum ekrum er mjög gamall, sumar plönturnar eru jafnvel yfir 80-100 ára. Í Grands-Echezeaux var vínviðurinn að stórum hluta gróðursettur upp úr 1928 og er því um eða yfir 90 ára gamall. Þessi gamli vínviður gefur af sér lítið en kraftmikil vín.

Vínviður er ræktaður á um 6 hekturum í Chambolle-Musigny, Nuits-Saint-Georges, Flagey-Echezeaux, Vosne-Romanée og Gevrey-Chambertin. Dreifing vínekranna um ólík þorp gerir Richard kleift að fanga fjölbreytt einkenni jarðvegsins.

Eins og háttar til um mörg víngerðarhús í Búrgúndí þá var lengst af stærstur hluti af uppskerunni seldur til annarra framleiðenda. Af því leiðir að það var ekki fyrr en á allra síðustu árum sem vín Desaunay-Bissey urðu vel sýnileg.

Bruno Desaunay var ástríðufullur víngerðarmaður, hlaut uppeldi sitt á vínekrunum. Árið 2007 ákvað hann að hætta með öllu notkun illgresis- og skordýraeiturs á ekrunum. Síðan þá hefur lutte raisonnée – hófsamri lífræn ræktun – verið fylgt. Lutte raisonnée, sem þýðir ,,skynsamleg barátta” á frönsku, er nálgun í vínrækt þar sem notkun efna er stillt í algjört lágmark en ekki útilokuð líkt og í fullri lífrænni ræktun.

Til að byrja með er hægt á víngerðarferlinu með kælingu til að ná fram lit og ilm án óþarfa beiskju. Eftir gerjunina lúta vínin löngu þroskaferli á frönskum eikartunnum þar sem um þriðjungur tunna eru ónotaðar (meira í tilviki Grand Cru vína). Vínin eru síðan sett á flöskur án þess að fara í gegnum síun.

Benda má á Vosne-Romanée 1er cru Les Rouges 2018 sem var seintekinn árgangur en er óðum að ná sínu besta skeiði. Fyrir þá sem vilja slá í sniðugt smakk mætti benda á þrjá árganga af Nuits-Saint-Georges Les Belles Croix 14/17/21 .

Ekrurnar við þorpið Nuits St. Georges eru ýmist fyrir norðan eða sunnan við byggðina. Að margra mati sýna vínin sunnan megin þar sem Belle Croix er staðsett, hina eiginlegu NSG blæbrigði sem gera vínin sérstæð í samanburði við nærliggjandi þorp. Hér er því um að ræða athyglisvert vín fyrir þá sem vilja upplifa vín frá þesum hluta svæðisins gert upp á gamla mátann til geymslu.

  • Bourgogne Côte d’Or 2022 og 2021
  • Gevrey-Chambertin 2021
  • Chambolle-Musigny 2021
  • Vosne-Romanée 2022
  • Vosne-Romanée 1er cru ‘Les Beaux Monts’ 2020
  • Vosne-Romanée 1er cru ‘Les Rouges’ 2018
  • Grands Echezeaux Grand Cru 2021 og 2022

Þetta úrval sýnir vel breidd víngerðarinnar - allt frá héraðsvínum upp í Grand Cru. 2021 og 2022 henta vel til geymslu og munu verðlauna þolinmóða viðskiptavini en það má vel njóta þeirra núna með umhellingu.

Grands Echezeaux eru augljóslega spennandi þar sem vínviðurinn er um og yfir 90 ára gamall, líkt og áður segir.

 



Í þessari grein