Rannsóknarsetrið: Arnaud Baillot 2023

Rannsóknarsetur Santé hefur nú tekið á móti nýjustu sýnum frá Arnaud Baillot í Búrgúndí. Þann 3. júlí næstkomandi verður þessum sýnum gerð sérstök skil í Skeifunni 8.
Þessi ítarlega rannsókn á tilraunasettinu mun m.a. hverfast um ilm, bragð og útlit.
Rannsóknin fer fram í stýrðu smökkunaumhverfi. Kostnaður við tilraunina er kr. 6.900 fyrir hvern þátttakanda en hann felur í sér allan búnað, sýni og vísindalega réttlætingu fyrir því að drekka vín á fimmtudagskvöldi.
📅 Hvenær: 3. júlí / kl. 17:30
📍 Hvar: Skeifunni 8
🎟 Miðaverð: 6.900 kr. – til sölu í vefversluninni