Óðar stundir!


Eftir Elías Blöndal Guðjónsson

Óðar stundir! - Sante.is

Myndlistakonan Hanna Jónsdóttir (Hanna frá Jaðri) sýnir verk sín í höfuðstöðvum Santé. Formleg opnun sýningarinnar verður miðvikudaginn 14. maí nk. milli klukkan 17-19. Allir eru velkomnir á opnunina og boðið verður upp á léttvín.

Á sýningunni verður að finna verk sem ýmist eru máluð með olíu eða akríl á fundið efni.

Hugmyndaheimur Hönnu, með óvæntum tengingum og nýstárlegri nálgun, samræmist vel þeirri framsýnu hugmyndafræði sem Santé stendur fyrir. Gestir geta notið listaverkanna í andrúmslofti sem býður upp á einstaka upplifun þar sem list og aðrar nautnir mætast á áhugaverðan hátt.



Myndlistakonan Hanna Jónsdóttir (Hanna frá Jaðri) vinnur með tungumálið í listinni og skapar óvænt hugrenningatengsl með viljandi stafsetningarvillum og eða minni háttar umsnúningi. Hún ólst upp á Jaðri í Suðursveit og segir nafn bæjarins eiga vel við sig.

Hanna er með B.A.-gráðu frá deildinni Identity í Design Academy Eindhoven (2008), MA.ed í listkennslu frá LHÍ (2021) auk þess sem hún lauk 2 árum í grafískri hönnun við Lhí á árunum 2014-16. Hún hefur unnið að fjölbreyttum hönnunarverkefnum sjálfstætt sem og undir nafni Attikatta og Dyslextwhere. Hún hefur haldið fyrirlestra, staðið fyrir námskeiðum og sinnt sýningarstjórn. Undanfarin ár hefur hún sinnt kennslu í textíl, smíðum og myndlist meðfram því að reka sína vinnustofu. Hún nálgast viðfangsefni sín með nýtni og útsjónarsemi að leiðarljósi, enda var það talið aulaskapur í Suðursveit að líta ekki í eigin barm eða leita langt yfir skammt.

Óðar stundir!

Hvenær: 14. maí / 17:00-19:00
Hvar: Skeifunni 8
Hvernig: Mæta