Leitin að pizzuvíninu

Á dögunum héldum við hjá Santé! skemmtilega pizzu- og vínsmökkun þar sem valinkunnum matgæðingum var boðið að taka þátt í leit okkar að hinu fullkomna pizzuvíni. Viðburðurinn var haldinn í afslöppuðu andrúmslofti í hinu nýja rannsóknarsetri Sante þar sem samspil gómsætra pizzu frá Olifa La Madre og mismunandi rauðvína var í brennidepli. Pizzurnar slógu í gegn og verða vafalítið á boðstólnum aftur - enda stutt að sækja þær í Krónuna.
Yfirleitt hefur hugtakið ,,pizzuvín” verið notað á frekar niðrandi hátt, sem er í raun alveg óþarfi. Pizzur eru einfaldlega þjóðarréttur Íslendinga og rauðvín með þeim er klassísk samsetning sem margir njóta reglulega. Því fannst okkur tilvalið að taka þessa samsetningu föstum tökum og athuga hvaða vín hentar best með góðri pizzu.
Að ýmsu er að hyggja eins og til dæmis að mjög fínleg og viðkvæm vín eins og Pinot Noir eiga erfitt uppdráttar með pizzum þar sem salt og fita í áleggi geta auðveldlega yfirgnæft blæbrigði slíkra vína. Betra er að velja vín með meiri karakter og þéttleika sem stendur undir kraftmiklum bragðþáttum pizzunnar.
Að lokum stóð eitt vín upp úr sem ótvíræður sigurvegari kvöldsins: Reverdito Barbera d'Alba - Butti. Þetta ítalska vín frá Piemonte héraðinu sýndi frábæra eiginleika í samspili við pizzurnar, með góðri sýru sem jafnvægisstillti ost og fitu, ferskleika sem hreinsaði bragðlaukana og nógu miklum krafti til að standa undir kröftugu áleggi. Það hneppti því verðskuldað titilinn „Pizzuvín Santé!" og mælum við eindregið með því næst þegar þið pantið góða pizzu.
Það er því óhætt að segja að leitin að hinu fullkomna pizzuvíni hafi borið tímabundinn árangur, þó ekki endanlegan enda þyrftum við þá að fá einhvern rétttrúnaðargoð sem hefur höndlað hinn eina endanlega sannleik. Því er hér með lýst eftir frambjóðendum í fagráð hins fullkomna pizzuvíns.
Reyndar var mjótt á munum því nokkrir úr fagráðinu tóku Chianti Classico frá hinu agnarsmáa húsi Pruneto fram yfir. Einar Thoroddsen lét sig ekki vanta og notaði tækifærið til að upplýsa menn um forsögu þess þegar þessi vín voru klædd bastkörfu sem kölluð var fiasko til varnar gegn hnjaski. Átti æstur múgurinn það til að grýta flöskunum yfir óperusviðið í Scala (og öðrum óperum) ef mönnum líkaði ekki sýningin sem festi orðið í sessi og varð þá viðkomandi sýning að sjálfsögðu algjört fíaskó. En þessi útúrdúr tengist vínunum að sjálfsögðu ekki á nokkurn hátt.
Besta vín kvöldsins var hinsvegar einnar ekru (La Serra) Barolo, einnig frá Reverdito, frá árinu 2016. Það var mat sumra að þar sem þetta vín hefði tekið út sinn þroska mætti segja að pizzurnar yfirgnæfðu vínið lítillega þó.