Hefur gin lækningamátt?


Eftir Elías Blöndal Guðjónsson

Hefur gin lækningamátt? - Sante.is

Er gin bara gin? 

Gin á rætur sínar að rekja til 17. aldar, þegar Hollendingar blönduðu einiberjum við vínanda og gáfu hermönnum. Með byssur í annarri hendi og ginflösku í hinni, urðu þessir hermenn svo hugrakkir að enski herinn kallaði drykkinn „Dutch Courage“.

Á 18. öld varð gin gríðarlega vinsælt í Bretlandi. Til að réttlæta neysluna komu fram hinar ýmsu læknisfræðilegu útskýringar – sumir sögðu að gin væri gott fyrir meltinguna og aðrir töldu það bætandi fyrir almenna heilsu.

Vörn gegn malaríu

Breska heimsveldið þurfti svo að berjast við malaríu í nýlendum sínum. Lausnin? Kínín, efni sem finnst í tonic vatni og vinnur gegn malaríu.

Vandamálið? Kínín bragðast hræðilega. Lausnin á vandamálinu? Blanda því saman við gin.

Þannig varð klassíski gin & tonic drykkurinn til – ekki aðeins sem frábær svaladrykkur heldur líka sem „lækning“ gegn hitabeltissjúkdómum.

Copperhead Gin

Copperhead Gin er belgískt London Dry Gin sem var þróað af lyfsalanum Yvan Vindevogel árið 2013. Innblásinn af sögum um lækningaeiginleika gins skapaði Vindevogel þetta gin með fimm jurtum: einiberjum, kardimommum, appelsínuberki, englarót og kóríanderfræjum.

Nafnið Copperhead vísar til koparpottanna sem notaðir eru við eiminguna. Copperhead er þekkt fyrir ferskt sítrusbragð með mjúku eftirbragði og er frábært í klassískan gin og tónik. Að minnsta kosti eitt það besta sem við höfum prófað í rannsóknarsetrinu.

Vísindalegar niðurstöður úr Rannsóknarsetri Santé!

  1. Læknar Copperhead sjúkdóma? Ósannað.
  2. Hefur Copperhead Gin bætt stemningu á föstudagskvöldi? Já og hefur verið sannað í margendurteknum tilraunum.

Copperhead Gin er góður kostur fyrir þá sem vilja smá Dutch Courage í lífið.



Í þessari grein

  • Copperhead Gin - Sante.is (7067821834305)
    Birgi:
    Copperhead

    Copperhead Gin

    Venjulegt verð 9.500 ISK
    Útsöluverð 9.500 ISK Venjulegt verð