Hvað er Cicchetti? / Aperol ódýrast hjá Santé!

Nú þegar vorið hefur leikið við okkur af einstakri mildi og sumardagurinn fyrsti er á næsta leiti, minnir náttúran sjálf á að nú tekur Aperol Spritz tíminn við.


Eftir Elías Blöndal Guðjónsson

Hvað er Cicchetti? / Aperol ódýrast hjá Santé! - Sante.is

Það er engin tilviljun að Aperol Spritz hefur verið líkt við ítalska sólsetrið. Þessi einstaki drykkur dregur lit sinn af Aperol-líkjörnum sem byggist á léttbeiskri appelsínu, rabarbara og ýmsum öðrum leynilegum jurtum. Þegar Aperol-líkjörinn er blandaður með freyðivíni og sódavatni dofnar hinn sterki appelsínuguli litur og verður líkt og blóðrautt sólsetur.

Á þessum síðustu og verstu tímum, þegar miklar skattahækkanir eru í vændum, er rétt að líta til hverrar krónu. Hið opinbera lítur svo á að hver króna sem fer ekki í ríkiskassann sé króna sem ríkið verður af. Greinarhöfundur lítur svo á að hver króna sem þú greiðir fyrir Aperol umfram það sem þarf, sé króna sem þú getur notað í eitthvað annað skemmtilegt.

Verðsamanburður er nauðsynlegur í upphafi og niðurstaðan er skýr - Santé býður besta verðið á Aperol, aðeins 3.300 kr.

Santé!
💰 3.300 kr. (700 ml)
✅ ÓKEYPIS Dropp og Pikkoló ef pantað er fyrir 6.000 eða meira.
✅ Engin árgjöld
ÁTVR
💸 4.399 kr. (700 ml)
❌ 33% / 1.099 kr. dýrara en Santé!
Veigar.eu
💸 4.199 kr. (700 ml)
❌ 27%  / 899 kr. dýrara en Santé!
❌ Heimsending kostar kr. 1.390 og Dropp kr. 490.
Costco
💸 4.799 kr. (1000 ml) - Umreiknað 3.359 fyrir 700 ml.
❌ Dýrara en hjá Santé!
❌ Árgjald er kr. 4.800
❌ Þarf að sækja í Kauptún

Sante býður einnig upp á sérstakan Aperol Spritz pakka með Prosecco frá Ruggeri. Þegar þú kaupir pakkann færðu að auki 10% afslátt af heildarverðinu.

Aperitivo

Á Ítalíu eru aperitivo-stundirnar gjarnan haldnar rétt fyrir kvöldverð við sólsetur, oftast á milli 17 og 19. En á Íslandi þarf vitaskuld að staðfæra aperotivo hefðina vegna hinnar einstöku birtu sem við erum svo heppin að njóta hér á landi. Þegar sólin sest ekki fyrr en um miðnætti að sumri til væri óheppilegt að bíða með Aperol Spritz þar til þá.

Við mælum því með að miða við klukkuna fremur en sólsetrið. Í apríl og maí mætti til dæmis vel njóta Aperol Spritz á milli 16 og 18 þegar vinnudeginum lýkur. Þegar komið er fram í júní og júlí mætti halda í þennan tíma, en einnig bæta við annarri aperitivo-stund síðar, kannski á milli 19 og 21, þegar sólin er enn hátt á lofti en notalegt að setjast niður eftir kvöldverð eða kvöldgöngu.

Aperitivo menning Evrópubúa verður sérstakt umfjöllunarefni í annarri grein síðar.

3-2-1

Leonardo da Vinci sagði að einfaldleiki væri hin fullkomna fágun og það á vel við þegar Aperol Spritz er annars vegar.

  • 3 hlutar Prosecco (90 ml)
  • 2 hlutar Aperol (60 ml)
  • 1 hlutur sódavatn (30 ml)

Allt er þetta sett í stórt vínglas, nú eða bara hvaða glas sem ykkur líst á þann daginn, með klökum og skreytt með appelsínusneið.

Cicchetti

Orðið "cicchetti" (borið fram tji-KET-ti) kemur úr feneyskri mállýsku; "cichét" sem merkir "lítill biti". Þetta eru smáréttir sem boðið er uppá í svokölluðum "bacari", sem eru hefðbundnir vínbarir í Feneyjum. Cicchetti er hvorki kvöldverður né lystauki, heldur táknmynd augnabliksins þar sem lífsnautnin og samveran tvinnast saman í einfaldleika sínum.

Bið okkar eftir ansjósunum frá Angelachu hefur nú staðið í nokkrar vikur vegna sérevrópskrar skriffinnsku. Kerfið er svo þungt í vöfum og íþyngjandi að í stað þess að flæða hindrunarlaust yfir landamæri eins og sjórinn sjálfur, sitja ansjósurnar fastar í pappírsflóði á meðan beðið er eftir svokölluðu “catch certificate” - ef til vill er það skjal sem staðfestir að fiskarnir hafi sannarlega verið veiddir áður en þeir voru settir í dósir. Þar til Útlendingastofnun hleypir ansjósunum inn höfum við sett upp nokkrar hugmyndir sem eru einfaldar í framkvæmd.

Parmigiano Reggiano

Greinarhöfundur kaupir oft Parmigiano frá Olifa, sem er 30 mánaða gamall og DOP-merktur (Denominazione di Origine Protetta). Hann fæst í Krónunni. Oft fæst líka góður Parmigiano í sælkeraborði Hagkaupa í Kringlunni. Mjólkin í Parmigiano kemur frá kúm sem fóðraðar eru eftir ströngustu reglum og það þarf 16 lítra af mjólk til að framleiða eitt kíló af Parmigiano Reggiano. Osturinn nýtur sín best einn og sér.

Parma skinka

Ítölsk skinka er eiginlega ómissandi cicchetti með Aperol Spritz. Um er að ræða þurrkaða skinku frá Parma-héraði á Norður-Ítalíu. Í sælkeraborði Hagkaupa í Kringlunni er gjarnan hægt að fá mismunandi þroskaðar skinkur - ungar skinkur (12-15 mánaða) eru ljósari og mildari á bragðið, en þroskaðri skinkur (18-24 mánaða) hafa sterkara bragð og dekkri lit. Hagkaup í Kringlunni er eini staðurinn á landinu þar sem hægt er að fá skinku af þessu tagi sneidda eftir pöntun, rétt eins og á Ítalíu. Skinkuna er gott að bera fram eins og hún kemur úr borðinu en það er líka flott að skreyta með stórum grænum ólífum.

Bufala mozzarella

Líklega frægasti ostur í heimi og eini mozzarella osturinn með DOP-vottun. Mozzarella úr mjólk vatnabuffala frá Kampanía-héraði er bragðmeiri og hefur og þéttari áferð en venjulegur mozzarella-ostur úr kúamjólk. Osturinn er svo bragðmikill að hann er ljúffengur alveg einn og sér. Engu að síður mælum við með að bera hann fram skorinn í sneiðar með ögn af jómfrúarólífuolíu og salti og/eða svörtum pipar. Osturinn fæst í Krónunni. Piparinn skal keyptur hjá Hyalin á Skólavörðustíg því þar fæst eini alvöru piparinn á landinu. Saltið fæst á Sante.is en það hefur eilítinn kaperskeim sem skemmir alls ekki fyrir. Ólífuolían fæst líka á Sante.is - sérstaklega er ráðlagt að nota Chianti-olíu í þessu tilviki.

Gleðilegt sumar!

 



Í þessari grein