100% Sangiovese. Vottað lífrænt og nokkuð örugglega hæst metna Chianti Classico sem í boði er hér á landi.
95+/100 Wine Advocate
96/100 Vinum
95+/100 Tony Wood
96/100 Wines Critic
94/100 Doctor Wine
93/100 Falstaff
93/100 James Suckling
Principe Corsini ræktar 49 hektarar af vínvið og 70 hektara af ólífum. Húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan 1360. Corsini fjölskyldan er ein sú merkasta á Ítalíu en sagan segir að þau geti ferðast frá Flórens til Rómar án þess að víkja af sínum eigin landareignum. Það er mikið lagt í víngerðina en trúin á jarðveginn er aldrei langt undan. Vínin eru lífrænt vottuð og áhersla lögð á að halda öllum inngripum í lágmarki.