Fara í efni

2020 Cepa Gavilan Crianza

Upprunalegt verð 3.600 kr. - Upprunalegt verð 3.600 kr.
Upprunalegt verð
3.600 kr.
3.600 kr. - 3.600 kr.
Núverandi verð 3.600 kr.

Páskabræður, Hermanos Perez Pascuas, í Pedrósu eru með virtustu vínræktendum í því ágæta vínhéraði Ribera del Duero á heiðunum norðan Madrid á Spáni. Vínmeistarinn Tim Atkin flokkar Pedrósu með stóryrkjum (Grand Cru) héraðsins ásamt Vega Sicilia o.fl.

Páskabræður eru íhaldssamir víngerðarmenn og hafa litlu breytt gegnum árin en 2004 ákváðu þeir að bæta yngra og léttara víni, Cepa Gavilan, við sitt hefðbundna vöruval, Viña Pedrosa Crianza, Reserva og Gran Reserva. Sama ár hættu þeir framleiðslu Viña Pedrosa Joven sem var s.k. Semi Crianza en þær voru tískufyrirbrigði um aldamótin.

Gamaldags vínin frá Pedrósu, fyrstu vínin sem flutt voru til Íslands frá Ribera del Duero af frumkvöðlinum Beri, höfðu notið nokkurrar hylli Íslendinga en hið aðgengilega Cepa Gavilan heillaði landann og seldust um árabil nokkur hundruð flöskur á mánuði, mest tæplega 1000 í desember á því Herrans ári 2007.

Cepa Gavilan var eitt af 12 uppáhalds Ribera del Duero vínum fyrrgreinds Tim Atkin í fyrra.

RP 91 The 2020 Cepa Gavilán, wants to be a balanced, fresh and Atlantic red produced with Tinto Fino. It matured in barrel for 12 months and has 14.5% alcohol and good acidity and freshness. The wine introduces the serious and classical wine style with ripeness, austerity and balance with typical rusticity and unusual elegance, a medium to full-bodied palate and fine tannins. 220,000 bottles produced. It was bottled in January 2022.

Reviewed by: Luis Gutiérrez, Published: Jan 31, 2023 www.wineadvocate.com

Undanfarin ár hefur sala Cepa Gavilan verið stöðug í tæpum 100 flöskum á mánuði og var vinsælasta vín Bers í Á.T.V.R., en sú stofnun rak eitt sinn einokunarverslun með áfengi hér á landi. Síðast liðið haust brast ógæfan á. Á.T.V.R. ákvað að innleiða sk. 5 ára reglu og hætta sölu vína sem höfðu verið í Sérflokki lengur en 5 ár. Þar með lauk tæplega 20 ára farsælli sögu Cepa Gavilan í Á.T.V.R. 

Vörutegund Rauðvín
Árgangur 2020 Styrkleiki 13.5%
Stærð 75 cl
Land Spánn Hérað Ribera del Duero
Þrúga Tempranillo
Þorp Valbuena
Afhending

Heimsending með Dropp og afhending á Dropp staði um allt land er ókeypis.

Við bjóðum upp á ýmsa afhendingarmöguleika. Hægt er að sækja vörur í vöruhúsið okkar á Grandanum, fá þær sendar heim að dyrum eða velja að sækja þær á ýmsa afhendingarstaði víðs vegar um landið.

Smelltu hér til að sjá nánari afhendingarmáta

Opnunartími vöruhúss

Vöruhúsið okkar að Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík er opið sem hér segir:

Mánudaga-föstudaga 10:00-18:00.
Laugardaga 12:00-14:00.