Fara í efni

DOMAINE HUMBERT

DOMAINE HUMBERT

DOMAINE HUMBERT

Óhætt er að segja að okkar Emanuel Humbert hafi slegið í gegn hjá vandlátum vínkaupendum hér á landi. Við fyrstu sýn mætti halda að ekrurnar væru allar í órækt sem að vissu leiti er rétt því hér kemur illgresiseyðir hvergi nærri ræktuninni frekar en skordýraeitur því samkeppni frá gróðri í yfirborðinu, neyðir vínviðinn til að róta sig dýpra og þá í gegnum fleiri jarðlög sem getur af sér fjölþættari vín.

Öll vín hússins koma frá Gevrey-Chambertin ef frá er talið Fixin sem kemur af gömlum vínvið sem vex við samnefnt þorp.

Í seinni tíð hefur Humbert aukið notkun á keilulaga tunnum sem talin eru gefa víninu aukið vægi á móti eikinni en nákvæmlega hvað það þýðir er ekki ljóst né eru allir vínbændur sammála frekar en við er að búast. Humbert hins vegar notar orðið 100% nýja eik í flest vín sem gerir þau óneitanlega eikuð á unglingsárunum sem svo samþættist í vínið með nokkura ára geymslu.

Okkar maður slær ekki feilnótu í 2022 árganginum frekar en þeim sem á undan komu. Hann fullyrðir að þessi árgangur sé á besti síðan 1959.