Fara í efni
Comte Georges de Vogüé

Comte Georges de Vogüé

Sagt er að engin kona geti hafnað víni frá þorpinu Chambolle Musigny enda séu þau fínlegustu/kvennlegustu vín héraðsins. Slíkt þýðir þó alls ekki að vínin séu tilkomuminni heldur þvert á móti fjölþætt undir yfirborðinu, járnhnefi í flauelshanska.

Víngerðarhúsið Comte Georges de Vogüé endurspeglar hefðir og sögu Burgundy í sinni hreinustu mynd þótt öll framleiðslan hafi verið færð að nútíma stöðlum af Jean-Luc Pepin og glænýjum víngerðarmanni, Jean Lupatelli (sýndur á myndinni með Arnari Sigurðssyni).

Það eru sterk tengsl milli Burgundy og hefða sem eru eðli máls samkvæmt mikils metnar en allt er breytingum háð.

Hjá de Vogüé hefur Jean Lupatelli tekið sín fyrstu skref með 2021 árganginum, sem er hans allra fyrsti frá uppskeru til átöppunar. 

Meðalaldur vínviðsins er 40 ár og öll Grand Cru vínin (Musigny og Bonnes Mares) eru merkt Vieilles Vignes (ísl. gamall vínviður). Bestu árgangar geymast í allt að 50 ár.