KHB Gin 41% / 50 cl
7.490 ISK
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
KHB Brugghús er handverksbrugghús á Borgarfirði eystri þar sem allt er unnið frá grunni.
KHB Gin er ekta borgfirskt handverk og byggir á vandlega samsettu jafnvægi átta kryddjurta—sumar í aðalhlutverki, aðrar í mikilvægum aukahlutverkum — sem saman skapa einstakt og hreint bragð.
Ginið hefur hlotið silfurverðlaun á London Spirits Competition 2023, 2024 og 2025 og
einnig silfur á Asian Spirits Ratings 2025.
Ilmur
Hlýr og mjúkur. Sítrusávextir í forgrunni með léttum einiberjatónum.
Bragð
Fersk byrjun með sítrónu- og limekeim sem þróast yfir í hlýjan kryddtón úr lakkrís- og
orrisrót.
Eftirbragð
Einiberin njóta sín til fulls í löngu og örlítið kitlandi eftirbragði.
Með tonic
Með tonic færist fókusinn yfir á einiber og rótarkennd krydd og úr verður hlýtt og ferskt gin & tonic.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Gin
- Stærð: 50 cl
- Styrkleiki: 41%
- Uppruni: Ísland, Borgafjörður Eystri

7.490 ISK