Ítalskur ,,aperitivo" eða fordrykkjarvín sem líklega þarf að bera saman við ,,bitter" sem er þekktara eins og Campari. Að grunni er hvítvín sem blandað er eimuðu víni ásamt ítölskum grape safa, jarðaberjum og hindberjum auk krydda og jurta og bragðast því eitthvað í áttina að Campari/Aperol. Drykkinn má nota í hefðbundinn Spritz; 1 hluti Starlino, 3 hlutar freyðivín og skvetta af sódavatni. Einnig má setja hann beint á klaka.