Drappier þrenna í gjafakassa
20.200 ISK
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
Vara uppseld!
En við getum látið þig vita þegar hún kemur aftur.
Drappier Brut Nature Zero Dosage og Rosé Brut Nature Zero Dosage
Okkar vinsælasta kampavín er Drappier Brut Nature ósykrað, vín sem við gjarnan köllum ,,einfaldlega gott." Í þetta vín er eingöngu notaðar full þroskuð ber sem týnd eru þegar sýrustigið byrjar að falla. Einungis er notast við fyrsta safann sem kemur úr pressunni og þarf því hvorki að teppaleggja yfir ágalla eða yfirvinna hátt sýrustig með sykrun í lok víngerðarinnar. Einungis er notast við lífrænt ræktað Pinot Noir en rósaliturinn smitast einmitt með því að hýðinu er haldið eftir í víngerðinni og hér er viðbætt sulfít í algeru lágmarki.
Drappier Carte d'Or Brut
Húsvínið frá Drappier. Hefðbundin blanda en hlutföllin eru þung í Pinot Noir eða 80%. Svo er 15% Chardonnay og 5% Meunier. Sykrun er 6,5 g/l.
Flöskurnar koma í gjafakassa.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Kampavín

