Sérstaða þessa bjórs er að hann er að hluta til bruggaður úr hrísgrjónum (ásamt möltuðu byggi) sem gefur honum sérstakann brakandi ferskleika. Afar ferskur og mildur lagerbjór sem er fullkominn með sushi. Samanlagt gefur bjórinn einstakt ,,karakuchi" sem er hugtak sem engin bein þýðing er til á.
Japanir standa framarlega á flestum sviðum. Matargerðin og menningin er þekkt um heima allan og nýtur hvarvetna vinsælda. Þar er ekki einungis um að ræða sushi. Wagyu þykir heimsins besta nautakjöt og ekki að ástæðulausu: Nautin eru alin á japönskum bjór.
Bjór er vinsælasti áfengi drykkurinn í Japan, umtalsvert vinsælli en hrísgrjónavínið sake. Japanskur bjór þykir sérlega léttur í bragði og áferðin er það sem kallað er á bjórmáli ,,brakandi“. Það er þess vegna engin tilviljun að japanskur bjór nýtur sívaxandi vinsælda á vesturhveli jarðar.