2022 Aurelien Verdet Bourgogne Hautes Cotes de Nuits Le Prieure

4.900 ISK


Venjulegt verð 4.900 ISK
Útsöluverð 4.900 ISK Venjulegt verð
VSK innifalinn
Heimsending og Dropp - Ekki til á lager
,
Skeifan 8 - Ekki til á lager
Skeifan 8 Reykjavík, 108
+3546923554

Vara uppseld!

En við getum látið þig vita þegar hún kemur aftur.

Uppselt

Hér er um að ræða heimaekru Verdet sem hefur verið lífrænt ræktuð síðan 1971 þannig að vínviðurinn hefur náð að róta sig djúpt í jarðveginum eins og segja má að vínið hafi gert í þjóðarsál íslendinga. Að þessu sinn notar Verdet heilknippi 100% (whole bunch) þar sem stilkurinn sem berin hanga á eru höfð með í gerjuninni. Slíkt gefur vínum soldið grip á unga aldri en bætir byggingarlagið þegar fram líða stundir. 2022 er hugsanlega besti árgangur héraðsins síðan 1959 og allavega ljóst að þetta vín hefur aldrei verið betra.

,,Frekar ljós, dumbrauð áferð, vel tær. Unglegur litur en nokkur þroski. Þægilegur, þéttur en mildur og hreinn Pinot- ilmur með yfirgnæfandi kirsuber án skaks. Ilmur þéttist og breikkar við þyrlun og fær "dekkri"kjarna (ennþá Pinot). Góð, breið fylling og margir "pixlar". Löng bragðending með mjúkum tannínum. Heilsteypt og kjarngott vín. Tilbúið til drykkju en endist í 6-8 ár ef einhver tímir að geyma það.  Drekkist með luralegum dýrum og lítt fleygum fuglum svo eitthvað sé nefnt. - Einar Thoroddsen

Nánari upplýsingar

  • Vörutegund: Rauðvín
  • Árgangur: 2022
  • Stærð: 75 cl
  • Styrkleiki: 13.0%
  • Þrúga: Pinot Noir
  • Uppruni: Frakkland, Burgundy, Le Prieure