Fara í efni

2021 Anne & Herve Sigaut Chambolle-Musigny

Upprunalegt verð 10.800 kr. - Upprunalegt verð 10.800 kr.
Upprunalegt verð
10.800 kr.
10.800 kr. - 10.800 kr.
Núverandi verð 10.800 kr.

Þorpið Chambolle-Musigny er staðsett í hjarta Côte de Nuits svæðisins í Burgundy héraði. 

Síðari hluti nafnsins vísar í bestu ekru þorpsins, Musigny, en vínunum þaðan hefur verið lýst sem járnhnefa í silkihanska.

Hjónin Anne og Hervé Sigaut rækta vínvið á 7 hekturum og kemur þetta vín úr fjórum mismunandi ekrum í þorpinu Chambolle-Musigny. Töfrarnir liggja í jarðveginum sem mótast hefur frá fornsögulegum tíma úr kalki og leir. 

Eins og háttar til um vín í góðu jafnvægi þá bragðast þetta vín best aðeins undir stofuhita, 16°C.

Vörutegund Rauðvín
Árgangur 2021 Styrkleiki 13.5%
Flokkur Þorpsvín Stærð 75 cl
Land Frakkland Hérað Burgundy
Þrúga Pinot Noir
Þorp Chambolle-Musigny
Afhending

Heimsending með Dropp og afhending á Dropp staði um allt land er ókeypis.

Við bjóðum upp á ýmsa afhendingarmöguleika. Hægt er að sækja vörur í vöruhúsið okkar á Grandanum, fá þær sendar heim að dyrum eða velja að sækja þær á ýmsa afhendingarstaði víðs vegar um landið.

Smelltu hér til að sjá nánari afhendingarmáta

Opnunartími vöruhúss

Vöruhúsið okkar að Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík er opið sem hér segir:

Mánudaga-föstudaga 10:00-18:00.
Laugardaga 12:00-14:00.