Fara í efni

2015 Cepa Gavilan Crianza Magnum - 1,5 lítra flaska

Upprunalegt verð 10.300 kr. - Upprunalegt verð 10.300 kr.
Upprunalegt verð
10.300 kr.
10.300 kr. - 10.300 kr.
Núverandi verð 10.300 kr.

Páskabræður, Hermanos Perez Pascuas, í Pedrósu eru með virtustu vínræktendum í því ágæta vínhéraði Ribera del Duero á heiðunum norðan Madrid á Spáni. Vínmeistarinn Tim Atkin flokkar Pedrósu með stóryrkjum (Grand Cru) héraðsins ásamt Vega Sicilia o.fl.

Páskabræður eru íhaldssamir víngerðarmenn og hafa litlu breytt gegnum árin en 2004 ákváðu þeir að bæta yngra og léttara víni, Cepa Gavilan, við sitt hefðbundna vöruval, Viña Pedrosa Crianza, Reserva og Gran Reserva. Sama ár hættu þeir framleiðslu Viña Pedrosa Joven sem var s.k. Semi Crianza en þær voru tískufyrirbrigði um aldamótin.

Gamaldags vínin frá Pedrósu, fyrstu vínin sem flutt voru til Íslands frá Ribera del Duero af frumkvöðlinum Beri, höfðu notið nokkurrar hylli Íslendinga en hið aðgengilega Cepa Gavilan heillaði landann og seldust um árabil nokkur hundruð flöskur á mánuði, mest tæplega 1000 í desember á því Herrans ári 2007.

Cepa Gavilan var eitt af 12 uppáhalds Ribera del Duero vínum fyrrgreinds Tim Atkin í fyrra.

Vörutegund Rauðvín
Árgangur 2015 Styrkleiki 13.5%
Stærð 150 cl
Land Spánn Hérað Ribera del Duero
Þrúga Tempranillo
Þorp Valbuena
Afhending

Heimsending með Dropp og afhending á Dropp staði um allt land er ókeypis.

Við bjóðum upp á ýmsa afhendingarmöguleika. Hægt er að sækja vörur í vöruhúsið okkar á Grandanum, fá þær sendar heim að dyrum eða velja að sækja þær á ýmsa afhendingarstaði víðs vegar um landið.

Smelltu hér til að sjá nánari afhendingarmáta

Opnunartími vöruhúss

Vöruhúsið okkar að Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík er opið sem hér segir:

Mánudaga-föstudaga 10:00-18:00.
Laugardaga 12:00-14:00.