Framhaldssamband - Champagne og Burgundy
Við höfum stillt upp viðburðum fyrir 10-12 manns sem hentugum fjölda m.a. til að láta eina flösku í tegund duga fyrir hópinn. Léttvín kalla auðvitað á létta stemningu og þó svo að um sé að ræða þrotlausa þekkingarleit, tökum við tilefnið hæfilega alvarlega.
Grunnatriði varðandi vín er að þau bragðast mismunandi eftir tegund af þrúgu, upprunasvæði og að einhverju leiti víngerð. Almennt má segja að við viljum helst lata víngerðarmenn þannig að upprunaekra vínsins og eiginleikar hvers árgangs skíni í gegn.
Hjá okkur er engin ástæða til að óttast að kunna ekki skil á spekingslegum spurningum nú eða innihaldslausum frösum, við getum bæði lagt til spurngar og svör.
Í þessu framhaldsnámskeiði er prófuð:
- 1 x 1er Cru kampavín
- 1 x Grand Cru kampavín
- 2 x hvít þorpsvín
- 2 x rauð þorpsvín
- 2 x 1er Cru hvítvín
- 2 x 1er Cru rauðvín
- 1 x Grand Cru hvítt eða rautt
Vörutegund | |
---|---|
SÉRPÖNTUNARVARA
Þetta er fágæt vara sem gæti verið til á lager. Sala á henni er þó háð ýmsum skilyrðum.
Ef þú hefur áhuga á vörunni þá getur þú sent okkur fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.