2023 Coloma Merlot Selección
3.770 ISK
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
Síðlesið Merlot-rauðvín [þ. Spätlese - svo daðrað sé við þýzkuvini].
Skilyrði í Öfgahörku [sp. Extremadura] eru óvenjuleg. Þar er skráfþurrt sem gerir mögulegt að láta þrúgurnar þroskast á vínviðnum, án þess að hætta sé á myglu.
Liturinn er kirsuberjarauður með fjólubláum jaðri. Flókið og glæsilegt í nefi með ilmi af
plómum, kirsuberjum, súkkulaði og sultu.
Bragðmikið og mjúkt með sætum tannínum. Óvenjulega bragðgott vín, með áberandi og greinilegu berjabragði. Flauelsmjúkt og í góðu jafnvægi.
Sum af vinsælustu vínum á Íslandi eru s.k. passimento vín (þurrkaðar þrúgur, e.k. rúsínuvín) frá Norður Ítalíu. Stíllinn á Merlot Selección er á næsta þrepi fyrir ofan en frísklegra og því upplögð uppfærsla fyrir þá sem þora að prófa.
Ungir tæknimenn, sem þekktir eru fyrir góðan smekk, heilluðust af þessu víni í smökkun.
Algjör lýðtryllir [e. Crowd pleaser].
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Rauðvín
- Árgangur: 2023
- Stærð: 75 cl
- Styrkleiki: 14.0%
- Þrúga: Merlot
- Uppruni: Spánn, Extremadura

3.770 ISK