Fara í efni

2021 Principe Corsini Chianti Camporsini DOCG

Upprunalegt verð 2.400 kr. - Upprunalegt verð 2.400 kr.
Upprunalegt verð
2.400 kr.
2.400 kr. - 2.400 kr.
Núverandi verð 2.400 kr.

95% Sangiovese og 5% Colorino. Létt og fínlegt vín sem sýnir hið rétta andlit Sangiovese þrúgunnar. Þetta vín fellur í flokkinn fyrir neðan Chianti Classico þar sem þrúgurnar eru aðkeyptar en víngerðarstíll Principe Corsini er engu að síður í forgrunni. Þetta er vín sem við köllum “best in class” sem þýðir einfaldlega að þetta er það besta sem við höfum fengið í þessum flokki kerfisins.

Principe Corsini er 49 hektarar af vínvið og 70 hektarar ólífuræktun. Húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan 1360. Corsini fjölskyldan er ein sú merkasta á Ítalíu en sagan segir að þau geti ferðast frá Flórens til Rómar án þess að víkja af sínum eigin landareignum. Það er mikið lagt í víngerðina en trúin á jarðveginn er aldrei langt undan. Vínin eru lífrænt vottuð og áhersla lögð á að halda öllum inngripum í lágmarki. 

Vörutegund Rauðvín
Árgangur 2021 Styrkleiki 12.5%
Flokkur Chianti Stærð 75 cl
Land Ítalía Hérað Chianti
Þrúga Sangiovese og Colorino
Þorp San Casciano
Afhending

Heimsending með Dropp og afhending á Dropp staði um allt land er ókeypis.

Við bjóðum upp á ýmsa afhendingarmöguleika. Hægt er að sækja vörur í vöruhúsið okkar á Grandanum, fá þær sendar heim að dyrum eða velja að sækja þær á ýmsa afhendingarstaði víðs vegar um landið.

Smelltu hér til að sjá nánari afhendingarmáta

Opnunartími vöruhúss

Vöruhúsið okkar að Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík er opið sem hér segir:

Mánudaga-föstudaga 10:00-18:00.
Laugardaga 12:00-14:00.