Fara í efni

2021 Cigliano di Sopra Chianti Classico DOCG

Upprunalegt verð 4.200 kr. - Upprunalegt verð 4.200 kr.
Upprunalegt verð
4.200 kr.
4.200 kr. - 4.200 kr.
Núverandi verð 4.200 kr.

100% Sangiovese. Gerjunin fer fram í stáltönkum og vínið fær svo að liggja á frönskum eikartunnum. Vottað lífrænt og lífefld ræktun.

Cigliano di Sopra er staðsett í San Casciano í Val di Pesa. Þetta Chianti Classico svæði er það nyrsta af þeim öllum en í þessum ævaforna árfarvegi eru ávalar steinvölur fyrirferðarmiklar í jarðveginum. Hér mætist gamall og nýr heimur því víngerðin hér á rætur aftur til 14. aldar en er nú í höndum líklega yngstu víngerðarmanna sem við höfum hitt á okkar ferðum. Maddalena er afkomandi eigenda jarðarinnar en hún nýtur liðsinnis skólafélaga sinna við vínræktina sem öll hafa mikla ástríðu fyrir víngerðinni og hafa unnið við víngerð víða. Að hluta til hefur miklum húsakosti verið breytt í ferðaþjónustu fyrir hópa eða fjölskyldur til að leigja. Unga víngerðarfólkið tekur vel á móti okkur en tómar flöskur í kjallaranum koma upp um þau sem áhugafólk um Burgundy. Hér eru á ferðinni miklir náttúruunnendur sem nota hvorki eitur né áburð og ræktunin er ekki einungis lífræn heldur líka lífefld. Gerjunin fer fram í stáltönkum og vínið fær svo að liggja á frönskum eikartunnum. Hjá Cigliano di Sopra eru framleiddar u.þ.b. 21.000 flöskur á ári.



Vörutegund Rauðvín
Árgangur 2021 Styrkleiki 12.5%
Flokkur Chianti Classico Stærð 75 cl
Land Ítalía Hérað Chianti
Þrúga Sangiovese
Þorp San Casciano
Afhending

Heimsending með Dropp og afhending á Dropp staði um allt land er ókeypis.

Við bjóðum upp á ýmsa afhendingarmöguleika. Hægt er að sækja vörur í vöruhúsið okkar á Grandanum, fá þær sendar heim að dyrum eða velja að sækja þær á ýmsa afhendingarstaði víðs vegar um landið.

Smelltu hér til að sjá nánari afhendingarmáta

Opnunartími vöruhúss

Vöruhúsið okkar að Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík er opið sem hér segir:

Mánudaga-föstudaga 10:00-18:00.
Laugardaga 12:00-14:00.