Roulot er einn eftirsóttasti hvítvínsframleiðandinn í Burgundy. Húsið framleiðir einnig apríkósulíkjör sem gerður er úr apríkósum frá Bergerac frá Suðvestur Frakkalandi. Líkjörinn þykir bragðmikill en um leið flauelsmjúkur með blöndu af sætum rauðum og appelsínugulum ávöxtum, rósablöðum, kanil og myntu.