Howdy
Thanks for trying the Ignite Shopify template.
Negroni kokteilinn á rætur að rekja til Flórens árið 1919, þar sem hann var skapaður af Fosco Scarselli á barnum Café Casoni. Sagan segir að hinn frægi greifi Camilo Negroni hafi beðið barþjóninn um að styrkja uppáhaldskokteilinn sinn - Americano - með því að skipta sódavatninu fyrir gin. Scarselli bætti við appelsinusneið í stað sítrónusneiðar og þannig fæddist Negroni.
Rúmum 100 árum eftir að kokteillinn var fyrst búinn til er Negroni enn einn vinsælasti kokteilinn í heiminum Alþjóðasamtökum barþjóna (IBA) er Negroni mest umbeðni kokteillinn á barnum.
Ekki flækja lífið. Innihaldsefnin í Negroni eru fjögur: Campari, sætur vermouth, gin í jöfnum hlutföllum og appelsínusneið. Ef þú vilt einfalda lífið enn meira getur þú keypt Campari Negroni í flösku sem er tilbúinn til neyslu. Þú þarft bara klaka og appelsínu!