Chassagne-Montrachet

Þegar kemur að bestu hvítvínum heims eru landamærin milli Chassagne og Puligny sjálfur fjársjóðurinn við enda regnbogans. Á svæði sem nær yfir nokkur hundruð metra liggja fimm stórkostlegar Grand Cru ekrur, þar af þrjár í Chassagne. Þar fer fremst í flokki hið þétta og ilmandi (en dálítið breytilega) Le Montrachet, en árið 1879 fékk Chassagne leyfi til að tengja nafn sitt við það með bandstriki, líkt og Puligny. Bæði Montrachet og hið kröftuga, hnetukennda og hunangssæta Bâtard-Montrachet skiptast á milli Chassagne og Puligny. Hið ilmandi, fágaða og sjaldgæfa Criots-Bâtard-Montrachet liggur hins vegar innan marka Chassagne. Grand Cru ekrurnar hafa sínar eigin gæðaflokkanir (appellations) og þess vegna birtist nafn þorpanna (Chassagne eða Puligny) ekki á miðanum.

Stíl Chassagne er oft lýst sem millivegi milli Puligny-Montrachet og Meursault: ekki jafn fágað og Puligny, ekki jafn feitt og Meursault, en með einkenni beggja. Chassagne er steinefnaríkt, oft blómlegt með keim af heslihnetum.

Þrátt fyrir fjölda mjög góðra Premier Cru ekra, þá er þorpið í heildina ekki jafn frægt og Meursault og Puligny, en hér er það smekkur manna sem skiptir máli. 

Meursault

Vínin héðan eru jafnan bragðmikil og matarmikil með keim af hnetum og hunangi, ásamt smjörkenndri vanillu og kryddi úr eikinni. Á meðan önnur hvítvín eru drukkin sem fordrykkur, er sagt að Meursault þurfi mat — helst rjómasósur, humar eða jafnvel ljóst kjöt — til að njóta sín til fulls.

Þrátt fyrir að Meursault sé töluvert stærra en nágrannaþorpin Chassagne og Puligny í suðri, eru engar Grand Cru ekrur þar. Þrjár bestu Premier Cru ekrurnar — Les Perrières, Les Genevrières og Les Charmes — gefa hins vegar af sér sum af bestu hvítvínum héraðsins: þau eru mikil að vexti, rúnnuð, kröftug og eldast mjög vel. Perrières er oft talin vera á borð við Grand Cru, sem endurspeglast oft í verðinu.

Margar vínekrur undir Premier Cru flokki, svokölluð „village“ vín, eru einnig vel þess virði að skoða. Margir ræktendur víngera þrúgur af mismunandi ekrum sínum sérstaklega. Slík vín geta verið merkt með nafni ekrunnar (lieu-dit) við hlið Meursault-nafnsins, þó með minna letri.

Puligny Montrachet

Puligny liggur á milli hinna stærri Chassagne og Meursault og gefur af sér vín sem þykja meira aristókratísk en nokkur önnur í Côte d’Or. Þau búa yfir blómlegum glæsileika ásamt fágaðri og stálkenndri þéttni. Þau geta verið frábrugðin Meursault: fágaðri, viðkvæmari og ekki jafn bragðmikil (rich).

Styrkur Puligny-Montrachet liggur ekki á village-stigi þó að vín frá bestu ræktendum getur verið hreint afbragð. Meginástæðan er að vatnsborðið er mjög hátt (engir kjallarar) og því þarf vínviðurinn á láglendinu ekki að róta sig jafn djúpt. Fyrir utan Grand Cru ekrurnar þá byggir Orðspor Puligny-Montrachet þó á fjórum 1er Cru ekrum þess, Caillerets, Pucelles, Combettes og Clavaillon. Margir telja Montrachet vera besta hvítvín í heimi. Þegar það er upp á sitt besta býr það yfir dýpt, margbrotni og glæsileika sem fær mann til að undrast hvernig hægt sé að búa til slíkt vín úr einföldum vínberjum.